EMDR meðferðaraðili · Hjúkrunarfræðingur
Sérhæfð meðferð við áföllum, kvíða, þunglyndi og streitu. EMDRIA viðurkennd frá 2018 með áratuga reynslu í heilbrigðiskerfinu.



Jóhanna starfar á EMDR stofunni. Hún er hjúkrunarfræðingur með mikla reynslu af meðferðarvinnu einstaklinga vegna áfalla, þunglyndis, kvíða og lágs sjálfsmats.
Jóhanna hefur sérhæft sig í EMDR meðferð, lauk EMDR þjálfun árið 2013 og hlaut EMDRIA viðurkenningu sem EMDR viðurkenndur meðferðaraðili árið 2018. Hún hefur einnig verið virk í að sækja endurmenntun hvað varðar meðferð einstaklinga með flókna og endurtekna áfallasögu. Jóhanna hefur verið í handleiðslu á EMDR vinnu sína frá árinu 2013.
Jóhanna notar einnig hugræna atferlismeðferð í sínu starfi. Hún lauk árs námi í hugrænni atferlismeðferð 2007 á vegum Félags um hugræna atferlismeðferð í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands og Oxford Cognitive Therapy Centre.
Jóhanna hefur starfað á geðheilsusviði Reykjalundar þar sem hún tók þátt í að þróa eftirfylgdarnámskeið í núvitund fyrir skjólstæðinga og er leiðbeinandi á núvitundarnámskeiðum.
Eye Movement Desensitization and Reprocessing
Er heildstæð sálfræðileg meðferð sem þróuð var til að vinna úr afleiðingum áfalla og atburða sem trufla líf einstaklinga. Einn helsti kostur meðferðarinnar er að það þarf ekki að tala um atburðinn í smáatriðum eða vinna heimavinnu.
Nánar →HAM — Cognitive Behavioral Therapy
Byggir á því að túlkun okkar og hegðun hafi áhrif á hvernig okkur líður. Að vinna með og skilja hvernig hugsanir, hegðun og tilfinningar tengjast auðveldar þér að hafa áhrif á að bæta þína eigin líðan.
Nánar →Mindfulness
Er að taka eftir á sérstakan hátt með ásetningi, á þessu andartaki, án þess að dæma. Þegar við tökum eftir því sem við gerum, meðvitað og með mildi, þá breytist reynsla okkar. Þjálfun og ástundun er nauðsynleg til að tileinka sér núvitund. „Aðeins þetta augnablik, aðeins þetta andartak, aðeins að sitja hér, aðeins að vera manneskja, aðeins þetta augnablik.“ — Jon Kabat-Zinn
Nánar →Telehealth
Fjarviðtöl eru myndviðtöl en eru eins og viðtöl á stofu. Munurinn er sá að þú átt samskipti við mig í gegnum myndfund á netinu. Notaður er Kara Connect fjarfundarbúnaður sem er samþykktur sem viðurkenndur búnaður til fjarskipta af landlæknisembættinu. Hægt er að nota þau meðferðarform sem í boði eru jafnt á stofu sem í fjarviðtölum, þér að kostnaðarlausu.
Lauk EMDR þjálfun árið 2013. Hæfnivottaður meðferðaraðili af EMDR Íslandi og EMDR Europe.
Hugræn atferlismeðferð á vegum Oxford Cognitive Centre og Endurmenntunar Háskóla Íslands, 2007.
Leiðbeinandi í núvitund frá Mindfulness Association í Bretlandi, 2021. Þróaði ásamt samstarfsfélögum námsefni í núvitund á geðheilsusviði Reykjalundar.